E.Gunnarsson
ÞJÓNUSTA OG VIÐHALD FASTEIGNA
E.Gunnarsson hefur verið á markaði frá árinu 2013 þegar það flutti starfsemi sína heim frá Aberdeen í Skotalandi.
Fyrirtækið hefur verið og er í stöðugri þróun og hefur í dag sérhæft sig í þjónustu og viðhaldi fasteigna.
Okkar markmið er að auka verðmætasköpun fasteigna og mæta þörfum viðskiptavina á sviði þjónustu fasteigna með vali um viðhald og uppbyggingu.
Hjá okkur starfa reynslumiklir iðnmeistarar, byggingastjórar, meistarar, sveinar og nemar. Einnig vinnum við með traustum verktökum sem sinna breytilegum verkefnum – stórum sem smáum.
Fyrirtækið heldur úti þjónustusamningum, fyrir fasteignafélög, fyrirtæki og opinberar stofnanir.
Eigendur fyrirtækisins eru Smári Gunnarsson Húsasmíðameistari og Arna Hagalíns Verkefnastjóri og MBA